Þekktur áhrifavaldur sýknaður í Landsrétti

Landsréttur sýknaði í dag áhrifavaldinn Kristján Einar Sigurbjörnsson af líkamsárás sem hann var dæmdur fyrir í héraðsdómi árið 2019. Hann játaði bæði fíkniefnabrot og brot á vopnalögum, með því að bera vasahníf á almannafæri, ákvað Landsréttur að honum yrði ekki gerð frekari refsing.

Landsréttur segir í dómi sínum að ekki hafi tekist að sanna ásetning í líkamsárásarmálinu.

Kristján, eða Kleini eins og hann er kallaður, er áhrifavaldur á Instagram og hefur vakið mikla athygli sem kærasti söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur.

Í desember í fyrra var hann ákærður fyrir hótanir í garð lögreglumanna, er það mál nú í ferli.

Kristján hefur áður opnað sig um fortíð sína og segir að hún sé að hluta til óuppgerð. Hann sé hins vegar breyttur maður í dag.