Þekkt fólk sem hætt hefur að drekka

Kunnir Íslendingar sem hafa ákveðið að setja tappann í vínflöskuna eru gestir Sigríðar Arnardóttur í þættinum Fólk með Sirrý á Hringbraut í kvöld en þar verður fjallað á hispurslausan hátt um kosti þess að hætta að nota áfengi.

 

Meðal gesta er Róbert Marshall þingmaður sem vaknaði upp einn morguninn og fékk vitrun. Það var bara ekki í lagi hvernig hann notaði áfengi til að slappa af og við öll möguleg tækifæri. Fólk varð hissa á honum og taldi hann ekkert hafa drukkið of mikið. En hann fékk nóg og hafði líka vítin að varast en saga pabba hans er sorgleg saga alkóhólista. Hann hætti að drekka áður en hann settist á þing og sér ekki eftir því. Lífið hefur bara verið skemmtilegra hjá honum síðan. 

 

Í sama streng tekur Helga Braga Jónsdóttir leikkona. Hún hætti að drekka fyrir nokkrum árum. Ákvað það með sjálfri sér og fagnar oft þeirri ákvörðun þegar hún sér illa drukkið fólk. Helga Braga er oft veislustjóri og skemmtir í samkvæmum og það hefur oft komið sér vel að kunna að setja drukknu fólki mörk. Hún lýsir því á leikrænan hátt í þættinum hvernig hún hefur þurft að hrista fullt fólk af sér. 

 

Fleiri gestir koma fram í þættinum og lýsa frelsinu sem þeir hafa öðlast við það að hætta að drekka áfengi. Margrét Rósa Einarsdóttir staðarhaldari í Iðnó fór í meðferð en á ekki í neinum vandræðum með að afgreiða vín og umgangast fólk sem er að skemmta sér. Sif Gunnlaugsdóttir fór í kvennameðferð hjá SÁÁ fyrir 16 árum og upplifir frelsi og betra líf. Vilhjálmur Svan Jóhannsson man tímana tvenna. Hann háði harða baráttu við Bakkus. Honum var bjargað upp úr göturæsinu og hefur hjálpað mörgum áfengissjúklingnum í gegnum tíðina. 

 

Þátturinn endar að venju á hollráði utan úr bæ. Og að þessu sinni svara systurnar í Systrasamlaginu á Seltjarnarnesi því hvað þær gera til að láta sér líða vel eftir langan vinnudag. Guðrún og Jóhanna Kristjánsdættur þekkja það að svífa á skýi eins og þær segja frá þar sem þær fljóta í sundlaug.  

 

Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.