„Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú í níunda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavíkurborg til góða á einhvern hátt.
Slíkur borgari gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni, eða einhver, sem hefur haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða hefur gert Reykjavíkurborg gott á undanförnum árum með einhverjum öðrum hætti en án þess þó að fá greitt fyrir störf sín. Dagur B. Eggertsson segir:
„Það eru svo ótal margir Reykvíkingar sem eru að vinna óeigingjarnt starf í þágu borgarinnar á degi hverjum og þessu fólki ber að þakka. Ég hvet alla þá sem vita af slíkum einstaklingum að senda inn tilnefningu um Reykvíking ársins 2019.“
Sú hefð hefur myndast á undanförnum árum að Reykvíkingur ársins rennir fyrstur fyrir lax í Elliðaánum ásamt borgarstjóra í boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu. Bergþór Grétar Böðvarsson, var valinn Reykvíkingur ársins 2018, fyrir frumkvæði að stofnun og starfsemi knattspyrnufélagsins FC Sækó sem hann hefur varið ómældum tíma í jafnt innan sem og utan vallar.
Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið [email protected] eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir fimmtudaginn 13. júní 2019.
Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.