Þekkir engan sem segir: mig syfjar!

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku, heldur áfram að hakka samræmd próf í íslensku í grunnskólum í spað. Í nýrri athugasemd sem hann hefur birt á eigin fésbók gerir hann eina spurningu í íslenskuprófi í 10. bekk að umfjöllunarefni en gefin eru fjórir valkostir um hvernig eigi að nota sögnina að syfja. Þeir eru: Henni syfjar alltaf yfir sjónvarpinu. Honum syfjar alltaf yfir sjónvarpinu.  Mér syfjar alltaf yfir sjónvarpinu eða Mig syfjar alltaf yfir sjónvarpinu.

Það ku vera síðasti kosturinn sem er málfræðilega réttur en hvaða tilgangur er með því að prófa í orðnotkun sem nánast aldrei á sér stað?

Eiríkur bendir á að hann viti ekki um nokkurn mann sem noti þessa sögn í töluðu máli. Á vef Árnastofnunar sé að finna textasafn úr nútímamáli - 25 milljónir orða úr fjölbreyttum textum, formlegum og óformlegum, ritmáli og talmáli. 25 milljónir orða jafngildi svona 250-300 meðalskáldsögum.

„Í þessu textasafni koma fyrir samtals 11 dæmi um \"syfja\". Það þýðir að í 25 skáldsögum af meðallengd getur maður búist við EINU dæmi um sögnina \"syfja\". Er virkilega einhver skynsemi í því að prófa unglinga í þessu?“

Spyr prófessorinn en áður hefur Hringbraut fjallað um fyrri athugasemdir Eiríks sem gefur harla lítið fyrir þær mælingar sem notaðar eru til að kanna styrk íslenskra barna í ástkæra, ylhýra.