Þeir tóku ævistarf mitt og aleigu!

Linda Pétursdóttir, fyrrverandi alheimsfegurðardrottning fer mikinn í forsíðuviðtali í nýjasta hefti tímaritsins MAN þar sem hún sakar fyrrverandi leigusala Baðhússins um að reyna að gera sig persónulega gjaldþrota.

Í viðtalinu ræðir Linda lokun Baðhússins og síðar gjaldþrot þess, en hún segir að fyrirtæki sitt hafi verið eyðilagt af yfirmönnum fasteignafélagsins Regins því mikil seinkun hafi orðið á afhendingu húsnæðisins. Linda segir að eðlilega hafi ekki verið hægt að standa við leigugreiðslur þegar forsendur rekstursins hafi verið brostnar: \"Ég gat ekki borgað leigu þegar viðskiptavinir flúðu hávaðann, rykið og iðnaðarmenninar, \" segir hún.

Linda lýsir því í viðtalinu hvernig forsvarsmenn Regins gengu að hennar sögn fram af fullu offorsi gagnvart henni persónlega og reyndu að knýja hana í gjaldþrot: \"Ég var látin skrifa upp á sjálfsskuldarábyrgð fyrir heitum pottum, gufuklefum og afgreiðsluborðum sem enn eru í húsnæðinu. Það er gengið að mér af fullum þunga og verið að gera mig persónulega gjaldþrota,\" segir Linda og bætir við: \"Það dugði þeim ekki að taka ævistarf mitt, vinnuna mína og um 40 annarra heldur vilja þeir líka gera mig persónulega gjaldþrota. Þeir fá ekkert út úr því svo þetta er augljóslega persónulegt,\" segir Linda í opinskáu viðtalinu í nýjasta hefti MAN.