Þeir sem njóta efnislegra gæða freistist til að sýna ósanngjarnt oflæti

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, segir að þeir sem njóti efn­is­legra gæða, eins og hann sjálf­ur, freist­ist stundum til þess að segja öðrum að þau skipti ekki sköpum í líf­inu. „Þannig oflæti og skiln­ings­leysi er ósann­gjarnt. Hinu vil ég þó bæta við að á mínum æsku­stöðvum sást ríki­dæmi víða. Barns­hug­ur­inn greindi samt stundum að ham­ingja er ekki endi­lega mæld í fer­metr­um. Síðar hefur mér sýnst sem orð nóbels­skálds­ins séu sígild: „því hvað er auður og afl og hús / ef ein­gin jurt vex í þinni krús.““

Þetta er meðal þess sem fram kom í nýársávarpi for­set­ans sem flutt var í dag. Þar fór for­set­inn um víðan völl og fjall­aði um full­veld­is­af­mæli þjóð­ar­inn­ar, kulnun og streitu, fíkni­vanda, loft­lags­breyt­ing­ar, örbirgð, ófrið, flótta­manna­vand­ann, vax­andi spennu í sam­skiptum ríkja, mis­skipt­ingar heims­ins gæða og aðrar skæðar ógnir nútím­ans, svo fátt eitt sé nefnt.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2019-01-01-their-sem-njota-efnislegra-gaeda-freistist-til-ad-syna-osanngjarnt-oflaeti-og-skilningsleysi/