Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins sagði í setningarræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í dag að flokkurinn yrði að minna á árangur sinn á kjörtímabilinu. Fundurinn er haldinn á Akureyri.
Hann sagði útsendara slitabúanna hafi njósnað um sig. Hann viti til þess að brotist hafi verið inn í tölvuna hans og hann eltur til útlanda af þessum útsendurum.
Hann gagnrýndi það sem hann kallaði “kerfið”, það stæði í vegi fyrir framfaramálum. Embættismenn og aðrir en hann vilji rétta hlut eldri borgara, gera stórátak í samgöngum og byggja nýjan Landspítala.