„Fréttir bárust af því í vikunni að olíufélögin N1 og Olís hefðu gripið til þess ráðs að setja upp skilti á íslensku á bensín- og þjónustustöðvum sínum þar sem viðskiptavinir eru beðnir um að sýna erlendu starfsfólki þolinmæði og velvild. Var þetta gert vegna þess fjölda Íslendinga sem á það til að láta í ljós óánægju sína og gagnrýna starfsfólk fyrir íslenskukunnáttu.“
Þannig hefst grein í Fréttablaðinu eftir einn vinsælasta pistlahöfund landsins, Sif Sigmarsdóttur. Greinin hefur vakið talsverða athygli og segir Sif að athugasemdakerfi miðlanna hafi logað og sýnt fram á nauðsyn skiltanna. Þar sagði einn þeirra: „Þegar ég kaupi vöru og þjónustu á Íslandi, er ég ekki kominn til að æfa mig í þýzku, frönsku, ensku eða spænsku.“ Á öðrum stað var þessi ummæli að finna: „Ég sniðgeng fyrirtæki sem eru með fólk sem talar ekki íslensku.“
Þá birti Hringbraut í vikunni frásögn Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem greindi frá því í Fréttablaðinu að miðaldra maður hafði fengið áfall í strætó, að setjast hjá útlendingi sem var dökkur á hörund og flúði og sagði um leið og hann settist við hlið miðaldra konu: „Má ég sitja hérna, ég get ekki setið við hliðina á þessum negra.“
Sif segir í pistli sínum að vitað sé að íslenskan eigi undir högg að sækja og mikilvægt sé að varðveita hana. Sif segir:
„En íslenskunni stafar engin ógn af röngum framburði eða einstaka stafsetningarvillu. Íslenskunni stafar engin ógn af þágufallssýki, nokkrum enskuslettum eða starfsmanni í N1 í Borgarnesi sem talar hana ekki. Íslenskunni stafar engin ógn af sjálfboðaliða í London sem ver frítíma sínum í að útbúa eyðublað á ensku svo að íslensk börn í London sem eiga erlent foreldri sem ekki les íslensku fái líka að vera með í íslenskuskólanum,“ segir Sif og bætir við að lokum:
„Íslenskunni stafar hins vegar ógn af þóttafullum ruddum sem, útbelgdir af þjóðrembingi og þjakaðir af minnimáttarkennd, nota íslenska tungu til að berja sér á brjóst, upphefja sjálfa sig með því að gera lítið úr öðrum og kæfa í leiðinni löngun og ákafa annarra til að tileinka sér hana, nota hana og leika sér að henni.“
Hér má lesa pistilinn í heild sinni.