Þeir elstu á besta stað í bænum

Hringbraut heldur áfram heringferð sinni um landið til að skoða aðbúnað eldra fólksins á Íslandi, en hann er langt frá því að vera eins frá einum landshluta til annars.

Þeir Helgi Pétursson og Friðþjófur Helgason fara að þessu sinnu um vesturland til að huga að öldrunarmálunum - sérstaklega aðbúnaðinum á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Nú koma þeir við á Hellissandi, hitta heimamenn á Jaðri, dvalar - og hjúkrunarheimilinu í Ólafsvík og ræða þar sérstaklega við Ingu J. Krisinsdóttur, forstöðumann sem einfaldlega leigir út þá aðstöðu sem losnar til þeirra sem vilja.

Þá heimsækja þeir Barmahlíð á Reykhólum og koma við á Akranesi þar sem hverfi raðhúsa fyrir eldri borgara var byggt fyrir 30 árum. 

Okkar fólk er frumsýnt klukkan 20:00 í kvöld og endursýnt strax klukkan 22:00.