Þau eru ómyrk í máli Björgvin Guðmundsson, viðskiptafræðingur og baráttumaður fyrir bættum kjörum eldra fólks og Harpa Njáls, sérfræðingur í velferðarrannsóknum í þættinum Okkar fólk með Helga Péturssyni í kvöld. Þau undrast bæði sinnuleysi ráðamanna um kjör eldra fólks og segja það endurspeglast í nýju frumvarpi um breytingar á almannatryggingum sem nú liggur fyrir Alþingi. Raunar hefur Harpa sagt, að það sé betur heima setið en af stað farið, - nýja frumvarpið sé verra en það ástand sem nú ríkir og hefur nú verið rætt í 11 ár.
Okkar fólk er á dagskrá kl.20.30 í kvöld og endursýnt kl.22.30 og á tveggja klukkustunda fresti allan miðvikudag, sem og um næstu helgi.