Erlendir blaðamenn Latterly hafa skráð og birt hina viðkvæmu sögu sem gerðist í Grímsey fyrir nokkrum árum þegar barn, þríburadrengur, hrapaði fyrir björg og lést í eyjunni. Fram kemur að allar upplýsingar séu frá íbúum sjálfum, frá fyrstu hendi. Greinin er í löngu máli en Hringbraut birtir hér stutta lauslega þýdda endursögn.
Banaslysið varð 1. júlí árið 1983. Þríburarnir, hinir einu sem vitað er til að hafi fæðst í Grímsey, voru þá fimm ára gamlir. Þeir fóru út að leika og kemur fram í greininni að á þessum tíma hafi fimm ára gömlum börnum verið treyst til að valsa frjáls um eyjuna. Þríburarnir léku alltaf saman. Þeir voru óaðskiljanlegir.
Fram kemur einnig að þríburabræðurnir sögðu aldrei ég – heldur alltaf við. Þeir hétu Svavar, Konráð og Bjarni. Þeir voru við bjargið að skoða fuglsunga þegar miðbróðirinn Konráð hrasaði og féll niður bjargið með höfuðið á undan sér. Allt breyttist á því augnabiki. Bræðurnir hlupu hrópandi heim til sín: „Hann datt, hann datt.“
Tveir menn sigu örskömmu síðar eftir drengnum og komu honum upp. Flogið var með Konráð litla fyrst í sjúkraflugi til Akureyrar en síðan til Reykjavíkur. Pabbinn var á sjó en mamman fór með og afi drengjanna. Læknar sögðu móður þríburanna að það yrði allt í lagi með Konráð þótt hann væri þá enn meðvitundarlaus. Aðeins ein skráma var á höfðinu.
Eftir því sem haft er eftir móður Konráðs var sonur hennar þó með ógreinda innvortisáverka. Þeir drógu hann til dauða nokkru eftir að hann var kominn suður til Reykjavíkur.