Ingibjörg Melkorka lést aðeins sautján ára gömul árið 2015, þegar hún prófaði e-pillu í fyrsta sinn. Hún hafði gaman af að prófa hluti og taka áhættu en hún hafði aldrei áður fiktað við fíkniefni þegar hún dó. „Hún nefnilega fiktaði bara ekkert við fíkniefni. Hún fer bara að prófa, þegar hún deyr, þá er hún að bara að prófa, hún er að prófa í fyrsta skipti. Hún tekur ekki nema eina og hálfa töflu.“
Þetta segir Kristín Frímannsdóttir móðir Ingibjargar í ítarlegri umfjöllun á RÚV þar sem einnig er að finna myndbandsviðtal en Kristín mætti í í stúdíó 9. Kristín hefur áður tjáð sig um dóttur sína. Í samtali við DV á síðasta ári sagði hún:
„Þegar dóttir mín lést þá var hún fyrsti einstaklingurinn í stórfjölskyldunni sem prófaði fíkniefni og ég fann hjá sjálfri mér þvílíka fordóma gagnvart því og varð hrædd um að umræðan yrði að hún væri bara enn einn dauður dópisti, ég held að fordómar mínir pínulítið endurspegli fordóma annarra.“
Bætti Kristín við að dóttur hennar hefði átt erfitt uppdráttar í skóla, hún varð fyrir einelti meðal annars vegna sérstakra áhugamála. Hún var ein af þeim sem pössuðu ekki inn í skólakerfið, en afburðanemandi í því sem hún hafði áhuga á.
„Hún var heilluð af göldrum og öllu dulrænu og það stuðaði einhverja krakka í kringum hana sem skildu þetta ekki. Hún skipti um skóla og eignaðist nýja vini þar og ég vil meina að líf hennar hafi snarbatnað við það, en hún var brennd af fyrri reynslu. Hún mætti oft engum skilningi á því hvernig hún var, hún var afburðanemandi en fékk aldrei að njóta sín sem slíkur.“
Í viðtalinu í Stúdíó 9 sagði Kristín: „Áhugamál Ingibjargar Melkorku áttu ekki endilega alveg samleið með jafnöldrum hennar en hún var rosalega mikill vinur vina sinna.“
Hér má horfa og hlusta á viðtalið við Kristínu.