„þegar ég vaknaði var ég nakin og bundin föst við stól“

Austurríska hjólreiðakonan Nathalie Birli lenti í miklum hremmingum á þriðjudaginn þegar hún var úti að hjóla. Ekið var á hana, hún slegin, bundin og flutt í lítið hús nærri veginum þar sem hún var að hjóla. Sjálf segir hún að þetta hafi verið eins og atriði úr lélegri kvikmynd.

„Sem betur fer slapp ég frá þessu með aðeins handleggsbrot og minniháttar höfuðáverka.“

Skrifaði hún á Facebook um málið en í færslunni þakkaði hún öllum þeim sem leituðu að henni og komu að frelsun hennar.

Í samtali við Kronen Zeitung lýsti hún málinu frekar. Hún sagðist hafa farið út að hjóla um klukkan 16.30 á þriðjudaginn. Eiginmaður hennar var heima með 14 vikna gamlan son þeirra. Hún ætlaði að hjóla í eina klukkustund. Í miðri hjólaferðinni var rauðum sendibíl ekið á hana.

„Maður kom út úr honum, sló mig í höfuðið með barefli, batt mig fasta með límbandi og kastaði mér í aftursætið.“

Hún missti síðan meðvitund.

„Þegar ég vaknaði var ég nakin og bundin föst við stól.“

Hún segir manninn hafa verið „fullan af hatri“ og hafi alltaf verið með hníf í höndinni. Hann neyddi hana til að drekka vín og snafsa.

„Hann ætlaði að kyrkja mig. Síðan neyddi hann mig ofan í baðkar og reyndi að drekkja mér.“

Leit hófst

Eiginmaður Birli hafði samband við lögregluna þegar hún skilaði sér ekki heim. Leit hófst strax en Birli fannst ekki.

Leið hennar til frelsis lá í að ræða við mannræningjann.

„Vendipunkturinn kom þegar ég sá hversu margar orkídeur hann átti. Ég hrósaði þeim og skyndilega var hann viðmótsþýður. Hann sagðist vera garðyrkjumaður og sagði mér frá lífi sínu. Að faðir hans væri látinn, móðir hans væri áfengissjúklingur og að unnustan hefði haldið framhjá honum. Ég setti fram hugmynd við hann: „Við segjum að þetta hafi verið slys.““

Mannræninginn féllst á þetta. Hann ók henni heim skömmu fyrir miðnætti og skilaði einnig reiðhjóli hennar. Lögreglan gat síðan notað GPS-tækið á hjólinu til að finna hvar maðurinn á heima. Hann var handtekinn nokkrum klukkustundum síðar. Hann er 33 ára en nánari upplýsingar hafa ekki fengist um hann.