The shape of water besta myndin

The Shape of Water, kvikmynd Guillermo del Toro var valin besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni í Hollywood í nótt og fékk flest verðlaun. Myndin hlaut líka verðlaun fyrir bestu leikstjórn, framleiðsluhönnun og frumsamda tónlist. Myndin var tilefnd til 13 verðlauna.

Besti karlleikarinn var valinn var valinn Gary Oldman sem Winston Churchill í Darkest Hour, besta kvenleikkonan var valin Frances McDormand í Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Besti karlleikarinn í aukahlutverki var í þeirri mynd líka, Sam Rockwell og besta leikkona í aukahlutverki var valin Allison Janney í I, Tonya.

Dunkirk hlaut þrenn verðlaun, fyrir klippingu, hljóð og hljóðblöndun og Blade Runner hlaut tvenn, fyrir kvikmyndatöku og tæknibrellur. Coco hlaut einnig tvenn verðlaun, sem besta teiknimyndin og fyrir besta lagið og Darkest Hour hlaut einnig tvenn verðlaun, fyrir leik Oldmans og fyrir förðun og hárgreiðslu.

Á verðlaunaathöfninni í Hollywood í nótt var Jóhanns Jóhannssonar kvikmyndatónskálds sérstaklega minnst meðal þeirra sem látist höfðu á árinu. Jóhann var tvisvar tilnefndur til Óskarsverðlauna, 2015 og 2016.

Smeltu hér til að horfa á brot úr myndinni. 

Verðlaunahafarnir á Óskarsverðlaunavefnum.