Þau stjórnmál tapa sem vísa ekki veginn

\"Umræður á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra endurspegluðu vel þverstæðuna í pólitíkinni um þessar mundir: Annars vegar eru hagtölur sem sýna grósku í þjóðarbúskapnum. Hins vegar eru tölur viðhorfskannana sem sýna afgerandi vantraust gagnvart báðum stjórnarflokkunum og tveimur flokkum stjórnarandstöðunnar.\"

Með þessum orðum byrjar Þorsteinn Pálsson nýjasta pistil sinn á hringbraut.is. Hann segir leiðtoga stjórnar og stjórnarandstöðu hafa reynt hverja með sínum hætti að nálgast þennan sérstaka veruleika: \"Framsókn hefur misst mest fylgi frá kosningum. En innan flokksins virðist vera einhugur um þá skýringu að vantraustið byggist á misskilningi kjósenda. Í samræmi við það fór forsætisráðherrann með himinskautum í stefnuræðunni,\" skrifar Þorsteinn og sendir formanni flokksins litla sneið: \"Rangt væri þó að segja að forsætisráðherra hafi  með öllu verið laus við auðmýkt. Alltént talaði hann oftar um Ísland sem Evrópumethafa en heimsmethafa eins og venjulega.\"

Þorsteinn minnir á að menn geti ekki eignað sér umskiptin í hagkerfinu: \"Viðsnúningurinn í þjóðarbúskapnum varð fyrir þremur árum. Rætur hans eru í efnahagsáætlun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Þrjár ríkisstjórnir hafa því lagt lóð á þá vogarskál.\" Samt birtist pólitíski veruleikinn í vantrausti á þá flokka sem haldið hafa á þessum málum á þessu og síðasta kjörtímabili. VG heldur að vísu svipaðri stöðu og fyrir hrun. En þau hafa tapað uppsveiflunni frá 2009: \"Öll óánægjan bunkar sig síðan eins og göngulax í hyl Pírata,\" skrifar Þorsteinn um þverstæðuna í hinum pólitíska fjallasal.

\"Á margan máta minnir þetta á pólitísku umbrotin sem urðu á Bretlandi eftir síðari heimsstyrjöldina,\" skrifar Þorsteinn áfram og bætir við: \"Churchill hafði unnið eitt mesta pólitíska afrek í stjórnmálasögu landsins. En það var fortíð sem Bretar ákváðu að gera ekki að brauði nýs tíma. Þeir horfðu fram og kusu nýtt velferðarkerfi. Afstaða breskra kjósenda sumarið 1945 var ef til vill ekki sanngjörn eftir sigurinn á nasistum. Á sama hátt má segja að vantraustið gagnvart pólitíkinni hér heima sé ekki alls kostar sanngjarnt í ljósi þess að menn eru komnir vel á veg með að snúa niður drauga hrunsins.\"

Og þessi reyndi stjórnmálamaður bendir á eftirfarandi: \"Þau stóru verkefni sem tvær síðustu ríkisstjórnir hafa glímt við, ríkisfjármálin og slit þrotabúanna, eru fortíðardraugar. Vissulega þurfti að kveða þá niður. En sennilega beinist hugur kjósenda meir að Íslandi framtíðarinnar. Stjórnmálin hafa ekki megnað að gera hvort tveggja í senn að glíma við drauga fortíðarinnar og vísa veginn fram á við. Þetta er að vísu ákveðin einföldun. En hún  gæti skýrt að hluta þá klípu sem pólitíkin er í.\"