Þátttaka í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur minnkað verulega á síðustu árum að því er samantekt Hringbrautar sýnir, en í ár var hún aðeins fjórðungur á við það sem hún var fyrir rífum áratug.
Í prófkjöri flokksins í höfuðborginni árið 2006 tóku 12,500 manns þátt og var kjörfylgi flokksins þá 42,2%. Fjórum árum síðar, 2010 kusu 7,173 í prófkjörinu og fylgið fór niður í 33,6%. Í aðdraganda kosninganna 2014 var prófkjörsþátttakan 5,075 og minnkaði fylgið þá enn, reyndist vera 25,7%.
Í nýafstöðnu leiðtogakjöri flokksins tóku 3,885 manns þátt sem er fjórðungi minna en í prófkjörinu fyrir kosningarnar fjórum árum fyrr. Reynslan sýnir að nokkurt samhengi hefur verið á milli áhuga á prófkjörum hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna og kjörfylgis í sjálfum kosningunum - og má því velta fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn geti farið niður fyrir 20% fylgi í kosningunum í vor, en það hefur ekki áður gerst. Það er nefnilega svo að haldi þróunin áfram með sama hætti - og hlutfall milli þátttöku í prófkjöri og árangurs í kosningunum verði sambærilegur og í síðustu kosningum - þá gæti fylgi flokksins í komandi kosningum farið niður í 19,6%. Það yrði það lakasta í sögunni.
Fari svo má heita að stekkur skuli hún heita, Snorrabúðin gamla, en í þessum samanburði er vert að minnast gullaldar flokksins í borginni, svo sem kosningaúrslitanna 1990 þegar Davíð Oddsson, borgarstjóri og borgarstjórnarflokkur hans fékk 60% fylgi, en sá stórsigur fleytti Davíð inn í landsmálin, sem hann stjórnaði svo samfleytt næsta áratuginn og góðum þremur árum betur, lengur en nokkur annar forystumaður ríkisstjórnar í sögu lands og þjóðar.