Prófkjör ekki á kostnað alþingis

Tekið úr www.kjarninn.is 

Fríðindagreiðslur til þingmanna, meðal annars vegna aksturs, eru umfjöllunarefni sjónvarpsþáttar Kjarnans á Hringbraut þessa vikuna, en hann er hægt að nálgast á vefjunum kjarninn.is og hringbraut.is. Gestir þáttarins eru Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.

„Próf­kjör í flokki er svo langt í burtu frá þing­manns­starf­inu að það að mínu mati ætti ekki að vera full­gilt ferða­til­efni. Ekki nema að þú ættir önnur erindi með.“ Þetta segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Umræðu­efni þátt­ar­ins eru fríð­inda­kostn­aður þing­manna, sem leynd hefur verið yfir en nú stefnir í að verði gerð­ur, að minnsta kosti að mestu, opin­ber. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Fríð­inda­málið svo­kall­aða hófst af alvöru þegar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata sem er einnig gestur þáttar kvölds­ins, fékk svar við fyr­ir­spurn um end­ur­greiddan akst­urs­kostnað þing­manna 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar kom m.a. fram að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði þegið 4,6 millj­ónir króna í end­ur­greiðslur í fyrra. Hann opin­ber­aði í við­tali fyrr í mán­uð­inum að hann hefði þegið end­ur­greiðslur frá þing­inu fyrir keyrslu í tengslum við próf­kjör og sem fór fram vegna þátta­gerðar fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN.

Steingrímur segir í þætti kvölds­ins að ef menn hafi rukkað þingið fyrir akstur vegna próf­kjörs­þátt­töku þá væri eðli­leg­ast að þeir end­ur­greiddu þær greiðsl­ur.

Það verði þó alltaf erfitt að afmarka hvað eigi að end­ur­greiða og hvar eigi að draga mörk­in. Hann segir að þing­heimur eigi eftir að fara yfir ýmis álita­efni þessu tengt. „Eins og það hvort að setja eigi því skorður hvað þing­menn geti ferð­ast á kostnað þings­ins mán­uð­inn fyrir kosn­ing­ar, þegar þingið er farið heim. Eða frá þeim tíma sem þing lýkur störfum og kosn­inga­bar­átta hefst, eiga þeir þá á að vera meira á eigin vegum en nú er? Eigum við bara að hafa það skýrt að þátt­taka í próf­kjörum er ekki til­efni til að senda inn eigin reikn­ing?“