Vegfarandi sem átti leið um Ljósavatnsskarð í Þingeyjarsýslu á þriðjudagskvöld sendi Hringbraut þessa mynd sem hann tók af bílslysi sem vakið hefur sérstaka athygli eftir að norðlenskur lögreglumaður sást með skammbyssu í slíðri sínu á vettvangi.
Lögreglan hefur gefið skýringar á því og tekur fram að byssan hafi ekki verið hlaðin.
Eigi að síður vakti vopnið óhug ökumanna sem voru stöðvaðir þegar umferð tepptist vegna þessa nöturlega slyss. Engum sögum fer af því hvernig fólkinu í slysinu varð við að mæta vopnuðum lögreglumanni en sjá má mynd af byssunni hér.
Skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um hvort svona atvik hafi rýrt traust almennings á því að almennir lögreglumenn fái að beita skotvopnum ef þeir gera sig sekir um vopnaburð á slysavettvangi. Lögreglumaðurinn var að koma af viðbragðsæfingu þar sem vopn voru hluti æfingarinnar og gat hvergi losað sig við byssuna án þess að tapa krítískum tíma að sögn yfirlögregluþjóns á Akureyri.
Tveir slösuðust nokkuð í slysinu.