Alma Möller landlæknir segir það sláandi að 7 prósent kvenlækna hér á landi hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða kynbundnu ofbeldi á haustmánuðum síðasta árs. „Þetta er eitthvað sem þarf að skoða strax“, segir Alma. Þetta er haft eftir henni í Læknablaðinu, sem kom út í gær, og RÚV.is greinir frá.
Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Læknafélag Íslands lét gera í október síðastliðnum á líðan og starfsaðstæðum íslenskra lækna höfðu 7 prósent kvenkyns lækna orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða kynbundnu ofbeldi á vinnustað á síðustu þremur mánuðum fyrir könnunina. Þá höfðu 47 prósent kvenkyns lækna orðið fyrir slíku einhvern tíma á starfsævinni, samanborið við 13 prósent karlkyns lækna.
Landlæknir segir í Læknablaðinu að hlutfall þeirra kvenna sem hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi eða áreitni síðustu mánuði sé með ólíkindum miðað við alla þá umræðu um þessi mál sem hafi verið í gangi í samfélaginu.