Þarf að rannsaka skamma viðkomu

Bjarkey Ólsen Gunnarsdótir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir töluðu meðal annars um stöðu kvenna í stjórnmálunum.

Þær eru á einu máli um að rannsaka þurfi hvers vegna konur stoppa mun skemur við, í stjórnmálaþátttöku, en karlar.

Þó vissulega hafi margt lagast, í jafnrétti kynjanna, er margt eftir ógert. Þær segja að ekkert megi undanláta og áfram verði að sækja til fulls jafnréttis.

Þetta kom fram í Þjóðbraut á Hringbraut í morgun.

Viðtalið verður aðgengilegt á hringbraut.is á morgun.