Þarf að meta kosti og galla

„Í fyrsta viðtali eftir að dómurinn féll lýsti þáverandi dómsmálaráðherra því yfir að það væri stefnt að því að skjóta málinu áfram. Það þarf að staldra við og meta kosti og galla þess að annars vegar skjóta málinu áfram og vera í óvissu til framtíðar, eða þá að una þessum dómi og gera þá þær lagfæringar sem efni eru til.“

Þetta segir Benedikt Bogason, formaður stjórnar dómstólasýslunnar, í samtali við Morgunblaðið um úrskurð Mannréttindadómstóls Evrópu vegna skipunar fjögurra dómara í Landsrétt. Hann segir að stjórnvöld hafi farið nokkuð geyst í að fullyrða að vísa ætti dómi MDE til yfirréttar áður en væri búið að meta það faglega. Bókun stjórnarinnar um að meta áhrif málskots til yfirréttar áður en ákvörðunin um það væri tekin var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu en ekki var einhugur innan stjórnarinnar um að senda afstöðu stjórnarinnar frá sér í fréttatilkynningu.

Benedikt segir að dómararnir fjórir sem dómur MDE tekur til hafi þrátt fyrir þá stöðu að vera ekki starfandi skipunarbréf og að skipun þeirra verði því ekki breytt. Í bókun stjórnarinnar var því ráðlagt að fjölga dómurum við Landsrétt. Var lagt til að lagabreyting þess efnis yrði lögð fram. Þar sem fjórir af 15 dómurum væru nú óvirkir eftir dóm MDE og einn á leið í leyfi næsta haust gengi það ekki til langframa að aðeins tveir þriðju hlutar dómara við Landsrétt væru til taks.