Þarf að einkavæða jafnréttisbaráttuna

Enn ein birtingarmynd hins þráláta rofs á milli raunveruleika og skynjunar sást á Austurvelli á 17. júní þegar Sigmundur Davíð ræddi um dásemdina Ísland undir dynjandi mótmælum þúsunda Íslendinga.

Karl Ágúst Úlfssonar hóf margfræg inngangsorð sín í sjónvarpsþættinum Helginni í gærkvöld á hugleiðingu um þessa uppákomu: \"Jú, Íslendingar héldu uppá þjóðhátíðardaginn 17. júní. Sigmundur Davíð forsætisráðherra flutti ávarp á Austurvelli, þar sem hann benti á að á Íslandi ríkti mesta jafnrétti í heimi, hér væri samhugur og samstaða svo það hálfa væri nóg, vaðandi hagvöxtur og velmegun sem ætti sér engan líka í veröldinni. Fjöldi fólks var saman kominn á Austurvelli og svo undarlega vildi til að margir þeirra héldu sig vera að mótmæla stefnu ríkisstjórnarinnar og ástandinu í samfélaginu almennt, en þarna var enn og aftur um að ræða þrálátt rof á milli raunveruleika og skynjunar.\"

Og grínarinn geðþekki hélt áfram: \"Og eins og kom fram í ávarpi Sigmundar Davíðs ríkir gegndarlaust jafnrétti kynjanna á Íslandi. Hér geta kvennastéttir eins og hjúkrunarfræðingar farið í kjarabaráttu og jafnvel verkfallsaðgerðir og náð nákvæmlega sama árangri og karlastéttir eins og læknar ... kannski ekki nógu gott dæmi. Bíðum við ... Samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, þá ríkir hér jafnrétti miðað við höfðatölu. En það er hugsanlegt að raunverulegur árangur náist ekki fyrr en búið er að einkavæða jafnréttisbaráttuna.\"

Karl Ágúst var hugtekinn á hástemmdum ávörpum: \"Eins og fram kom í ávörpum ráðamanna á þjóðhátíðardaginn stendur Ísland orðið framarlega í samfélagi þjóðanna, einkum í heilbrigðismálum. Framlag okkar til heilbrigðismála í nágrannalöndunum er þegar orðið ómetanlegt og haldi íslenskir hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar áfram að streyma úr landi er útlit fyrir að heilbrigðiskerfum Norðurlandanna sé borgið um ókomna tíð.\"

Og hann var ekk hættur, nema hvað: \"En það eru ekki bara Norðurlöndin, sem eru ánægð með okkur Íslendinga. Grikkir hafa átt í miklum efnahagskröggum undanfarin ár, eins og kunnugt er. Nú er komin upp sú snilldarhugmynd þar í landi að fara ‘‘íslensku leiðina’’ við endurreisn efnahagslífsins. Grikkir eru sem sagt á leiðinni að kjósa tvo af auðugustu mönnum landsins í embætti forsætis- og fjármálaráðherra, sem síðan munu hefjast handa við að úthluta auðlindum til vina sinna og ættingja, leggja niður menningarstarfsemi í landinu, eyðileggja helstu náttúrperlur Grikklands, leggja heilbrigðiskerfið í rúst og koma í veg fyrir endurbætur á stjórnarskrá landsins. Það er alltaf gaman að geta verið fyrirmynd annarra þjóða.\"

Karl fór víða í inngangsorðunum: \"Samkvæmt nýlegum könnunum eru Íslendingar almennt hættir að lesa bækur. Það er hulin ráðgáta hvað landsmenn gera við allar bækurnar sem þeir kaupa á hverju ári. Hvar eru þær? Og til hvers heldur fólk almennt að þær séu? Eða er þetta bara eins og með megrunarkúrinn: við ákveðum á hverju ári að einmitt þetta árið ætlum við að lesa helling af bókum - en svo gerum við það ekki. Eða með mismuninn á niðurstöðum skoðanakannana og niðurstöðum kosninga: við ákveðum að kjósa aldrei framar gömlu kerfisflokkana, en svo gerum við það samt. Við ætlum að vera allt önnur þjóð en við erum, en svo erum við alltaf sú sama.\"

Hægt er að skoða inngangsorð Karls Ágústs í klippum á hringbrfaut.is og þáttinn í heild sinni undri sjónvarpsflipanum en gestir hans að þessu sinni voru Helga Braga Jónsdóttir leikkona og Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona.