Þá segir í yfirlýsingunni að Barnaverndarstofa hafi greint barnaverndarnefnd frá áhyggjum sínum af stöðu mála í Reykjavík á fundi nefndarinnar um miðjan september. Á þeim fundi hafi jafnframt verið upplýst að verið væri að skoða hvort áminna þyrfti nefndina.
„Barnaverndarstofa hefur nú á vormánuðum átt í óformlegum samræðum við Barnavernd Reykjavíkur varðandi það hvernig styrkja megi barnaverndarstarf í Reykjavík, þar sem um 40% allra barnaverndarmála á landinu eru unnin. Ákvörðun um áminningu verður tekin þegar fyrir liggur hvort barnaverndarnefnd Reykjavíkur vilji taka þátt í þeirri vinnu og nýta til hagsbótar fyrir þau börn sem þeim er falið að vernda,“ segir í yfirlýsingunni.
Fram kom í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær að Barnaverndarstofa fordæmdi vinnubrögð barnaverndar Reykjavíkur í máli tveggja systkina og að stofan hefði enn til skoðunar að áminna nefndina vegna ítrekaðra brota á reglum og stöðlum um vinnslu barnaverndarmála.