Þar sem er menning, þar er fólk

Ein helsta forsenda blómlegrar byggða er að þar sé fjölbreytt menning. Grímur Atlason, fyrrum bæjarstjóri, sagði á Hringbraut í gær að menning í samfélögum skipti byggðirnar miklu máli. Þar sem eru starfandi leikfélög, kórar og fleira þess háttar líði fólki betur og mannlífið auðgist.

Grímur nefndi einnig Aldrei fór ég suður og merka þýðingu þeirrar hátíðar. Til Ísafjarðar komi margt ungmenni sem annars kæmu ekki til Ísafjarðar og það fólk fari heim aftur með merka upplifun frá Ísafirði og þannig aukist bæði þekking og skilningur þess fólks á lífinu á landsbyggðinni.

Þátturinn Þjóðbraut er á dagskrá kl.21 á virkum kvöldum. Þátturinn er endursýndur í allan dag.