Tilkynningar eru farnar að berast um þakplötur sem eru að losna á húsum á Austurlandi en einkum hafa slíkar tilkynningar borist á Eskifirði, Reyðarfirði og Þórshöfn samkvæmt upplýsingum frá neyðarlínunni. Mbl.is greinir frá.
Þakplötur hafa fokið í nótt af bílskúr á Þórshöfn og þakkantur á húsi á sveitabæ í nágrenni þorpsins að sögn mbl. Þá fauk girðing við eit hús á staðnum og þakplötur losnuðu af skrifstofuhúsnæði á Reyðarfirði.
Lögregla varar íbúa á stormasvæðum við að vera á ferð, allt leggst á eitt fyrir austan, stormur, mikil rigning og sjávarstaða. Einkum eru íbúar Eskifjarðar beðnir að fara mjög varlega.
Ríkisútvarpið segir að veðrið verði verst milli klukkan 8 og 10 og hefur eftir fólki austanlands að ekki sé bót í máli að vindur sé orðinn austanstæðari og sjórinn eins og suðupottur.