Þakplötum rigndi yfir stóran hluta Sauðárkróks í ofsaveðrinu sem gekk yfir landið í nótt og skapaðist af þeim völdum mikil hætta í bænum fyrir vegfarendur sem héldu sig þó að mestu heima, ólíkt björgunarsveitarmönnum sem sinntu fjölda útkalla.
Mikið af þakplötum losnuðu af Steypustöðinni á Sauðárkróki og stórskemmdist þak hennar sem að hluta fauk á haf út og sömu sögu er að segja af þaki gömlu rafstöðvarinnar í bænum. Þá fuku hestakerra, hjólhýsi og gámur í bænum þar til björgunarsveitarmenn komu böndum þar á. Þá fuku þakplötur í Hafnarfirði í gærkvöld og höfðu lögreglu á höfuðborgarsvæðinu borist tilkynningar um 17 tjón á svæðinu undir miðnætti.
Rýma þurfti 21 hús á Patreksfirði sökum hættu á krapaflóði í gærdag og gistu 31 í fjöldahjálpastöð Rauða Krossins. Vatn flæddi yfir veginn í Goðadalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum og við Hrafnagil í Eyjafirði, en þar er enn mikill vatnselgur. Á Ísafirði og í Bolungarvík þurfti björgunarsveitarfólk að festa báta og tryggja ýmislegt lauslegt.
Búist er við áframhaldandi hláku á landinu í dag, en þó aðallega á Snæfellsnesi, Hvítársvæðinu, á Norðurlandi vestra sem og á vatnasviði Norðurár í Borgarfirði, kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.
Veðurstofan vekur athygli á því að rennsli í ám og vatnsföllum geti enn aukist verulega sem eykur hættu á að þær flæði yfir bakka sína og jafnvel varnargarða. Þá er viðbúið að aukið álag verði á afrennsliskerfi bæja. Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát.
Á þriðjudag verður mild sunnanátt með lítils háttar vætu á Suður- og Vesturlandi en léttskýjað á Norðausturlandi. Útlit er fyrir svipað veður á miðvikudag en þurrt víða bjart á fimmtudag.