Védís kara varð 16 ára móðir: „eina sem ég get sagt við næstu 15 ára stelpu sem grætur ófrísk á baðherberginu er: „þetta er hægt.“

Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir var aðeins sextán ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn, Theodóru. Í dag eru tíu ár síðan Theodóra fæddist. Védís kveðst  heppin að hafa fengið það tækifæri að upplifa móðurhlutverkið á unga aldri, þrátt fyrir að hafa ekki haft hugmynd um hvað hún væri að koma sér út í þegar hún varð ólétt.

Í samtali við Hringbraut segir Védís að mesta áfallið sem hún upplifði sem 16 ára móðir var þegar vinirnir hurfu hver á fætur öðrum.

„Ég sá hverjir voru í raun vinir mínir og hverjir voru bara að hafa samband við mig af því að ég var að eignast barn. Það var meira en helmingurinn, örugglega hátt í áttatíu prósent af þeim sem ég þekkti sem talaði ekki við mig eftir að stelpan varð svona þriggja mánaða. Hinir hurfu úr lífi mínu með tímanum eins og gengur og gerist en ég held að það séu tvær manneskjur sem ég er enn þá í sambandi við í dag frá því að ég varð ófrísk af stelpunni,“ segir Védís í samtali við Hringbraut.

Í dag er Védís fjögurra barna móðir. Eftir að hún átti Theodóru kynntist hún núverandi eiginmanni sínum. Eignuðust þau tvær aðrar stúlkur ásamt því að hafa fengið einn bónus-son með honum líkt og hún orðar það.

Mesta sjokkið þegar börnin eldast og fullorðnast

Védís segist hafa fengið góðan stuðning þegar hún eignaðist dóttur sín, án þess þó að gera sér fyllilega grein fyrir hvort hann hafi verið of lítill eða það sem hún þurfti á að halda á þeim tíma. 

„Á þessum tíma fannst mér ég vera í einhverskonar „lúppu“ og ég spáði mjög mikið í því hvernig þetta yrði allt saman,“ segir hún og bætir því við að „ég get alveg sagt frá því að þó að það hafi verið sjokk að eignast lítið barn, þá er mesta sjokkið klárlega þegar þau verða eldri og fullorðnast. Þá er maður svolítið kominn á krossgötur á hvorri línunni þú ætlar að standa og hvernig foreldri þú ætlar þér að verða. Það geta allir ákveðið að barnið fái ekki ís eða sykur fyrr en það verður eins árs en þegar barnið er komið með talsvert sjálfstæðari hugsanir þá ertu komin í „bad cop, good cop“ leik.“

Þegar dóttir hennar varð tíu ára á dögunum ákvað Védís að setjast niður og skrifa færslu á síðunni Mæður um það hvernig hún upplifun það var að vera ung móðir.

\"\"

Védís 17 ára með 10 mánaða Theodóru

„Ég veit það, þú veist það og allir sem kunna að reikna geta fattað það að hvort sem ég verð þrítug eða níræð, þá verður dóttir mín alltaf sextán árum yngri en ég. Svo titilinn mun ég bera með mér þar til ég fer í gröfina,“ segir Védís og bætir því svo við að:

„mig langar til þess að telja upp nokkra hluti sem ég var ekki búin að hugsa út í þennan rólega sunnudag þegar Theodóra fæddist.“

Heppin að kynnast ástinni fyrr en margir aðrir

„Ég var það heppin að kynnast ástinni fyrr en margir aðrir. Ég get ekki sagt að ég sé sú yngsta á Íslandi sem hefur átt barn á kynþroskaaldrinum, né að ég sé sú eina. En ég var það heppin að verða móðir á undan flest öllum sem ég þekkti. Ég hef áður komist í blöðin fyrir það að vera verjandi titilinn, meira að segja kom ég fram í sjónvarpi. En ég hins vegar get alveg sagt að ég mun ekki mæla með honum fyrir neinn – þetta er ekkert eitthvað til að grínast með,“ segir Védís.

Hún segist þó heldur ekki mæla gegn því en þá væri hún sjálfrátt að skjóta sjálfa sig í fótinn.

„Það eina sem ég get sagt við næstu 15 ára stelpu sem kemst að því að hún er ófrísk og grætur heilu Atlantshafi á baðherberginu hjá sér er: Þetta er hægt. Þetta er ekki ógerlegt, þetta er ekki auðvelt en þetta er hægt. Þetta er drullu (fokking) erfitt og það sem þú ert að leggja á litlu þig fyrir annan lítinn einstakling er svaðalegt,“ segir hún og tekur það fram að aldur komi því máli ekkert við.

„Uppeldi á barni er alltaf erfitt á einhverjum tímapunkti. En þegar þú ert tiltölulega enn þá sjálf að reyna að finna þína köllun í lífinu getur það verið mikið bras að bæta við annari framtíð ofan á það. En ef þetta verður raunin þín, þá áttu ekki eftir að sjá eftir einu augnabliki. Það sem Theodóra kom með inn í líf mitt er eitthvað sem annar einstaklingur hefði aldrei getað gert,“ segir hún.

Upplifði sig á stoppistöð og fannst hún hálf týnd

Védís segir börnin koma með eitthvað inn í líf hvers og eins sem aðeins það geti komið með. Hún segir að þrátt fyrir það að fleiri börn komi í heiminn að þá komi hvert og eitt þeirra alltaf með eitthvað sem hitt barnið gat ekki gefið.

Hún viðurkennir að þegar Theodóra varð tíu ára gömul þá fannst henni það súrrealísk tilfinning, verandi aðeins tuttugu og sex ára gömul sjálf. Hún hafi upplifað sig á stoppistöð þar sem henni fannst hún hálf týnd.

„Þetta var ekki eitthvað sem ég var búin að hugsa út í þegar ég átti stelpuna. Það eru aðeins þrjú ár í það að ég fermi og ég verð rétt að skríða í þrjátíu árin þegar ég verð búin að ferma fyrsta barnið mitt. Ég þekki nú nokkrar sem eru jafnaldrar mínir sem munu standa í því sama og ég á þessu fermingarári sem mun koma og ég held að þær séu ekkert minna að fá nett sjokk yfir þessu öllu saman,“ segir hún.

Védís segist ekki hafa áttað sig á því hversu miklar karaktersbreytingar yrðu á dóttur sinni eftir því sem hún eltist og að hún gæti ekki „stjórnað“ henni alltaf.

„Þarna var ég með lítinn hnoðra sem gerði ekkert annað en að væla í mér um að fá einn annan ís og ég gat klætt hana í kjóla eins og mig listi. Núna í dag get ég gleymt því að senda barnið frá mér í kjól, þetta barn vill nánast ganga aðeins í íþróttabuxum og bolum. Hún elskar tölvur og að teikna, ásamt því að áhættunnar sem þetta barn tekur valda okkur fjölskyldunni oft væg hjartaáföll. Hún hefur lent á bráðamóttökunni oftar en ég get talið á báðum höndum,“ segir Védís.

Hætt að kippa sér upp við augngoturnar

Þá segist hún heldur ekki hafa gert sér grein fyrir því hversu mikið heimurinn myndi breytast á þeim stutta líftíma sem dóttir hennar hefur lifað.

„Fyrir mér var ég búin að hugsa það að hún myndi hafa gaman af því að fara í allt það sem mér fannst gaman þegar ég var á þessum aldri, en núna í dag myndu krakkarnir horfa á mig eins og ég væri risaeðla,“ segir hún.  

Védís segist alltaf hafa átt von á því að fá augngotur frá ókunnugu fólki enda væri hún svo mikið yngri heldur en flestir foreldrar annara barna sem væru jafnaldrar dóttur hennar.

„Það er eitthvað sem ég er löngu hætt að kippa mér upp við og ég skil þau alveg. Sumir foreldrarnir þarna eru með börn á mínum aldri og finnst mjög skrítið að vera að ræða um skólahald barnanna sinna með manneskju á mínum aldri. Svo það skil ég mjög vel, og er ekkert sár lengur út af því. Ég hef einmitt verið á leið í foreldraviðtal með stelpunni þegar kennarinn spurði okkur báðar hvort við værum að bíða eftir foreldrunum. Ég hafði aldrei hitt kennarann svo ég gerði ekkert annað en að brosa og segja að ég héldi að ég væri nú að koma á fund með henni sjálf. Ég hef lent í því að strákarnir í tíunda bekk (mín ágiskun) hafi flautað á mig þegar ég er að sækja stelpuna í skólann. Svo það er ýmislegt sem maður lendir í  þegar maður er svona unglegur. Ég reyndar veit það vel að ég er ekkert eitthvað svakalega gömul í útliti, það gengur í ættinni,“ segir hún.

Þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á síðan Védís eignaðist dóttur sína sem hún gerði sjálf ekki ráð fyrir þá segist hún þakklát.

„Ég veit bara að ef staðan væri ekki svona í dag væri ég ekki gift manninum mínum. Ég væri ekki með fjögur börn að fæða og ala upp. Svo ég þakka stelpunni nánast daglega fyrir að hafa komið í líf mitt svona snemma, það er ekki allir svo heppnir að geta eignast börn. Því oftar sem ég er spurð út í stelpuna og fæ nánast gargað á mig „VARSTU 16 ÁRA?!“ því meira get ég sagt þeim að ég var bara heppnari en þau. Því ég var það heppin að ég kynntist ástinni í lífinu snemma og ég myndi aldrei vilja breyta því.“