Friðrik Sigurðsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, segir að það komi sér ekki á óvart að stóriðjustörf við kísilver PCC á Bakka heilli ekki ungmenni í Norðurþingi samkvæmt nýrri rannsókn.
Í þættinum á Sprengisandi um helgina kynnti Anna Ragnarsdóttir fyrrgreinda niðurstöðu í fjölþjóðlegri rannsókn Nordregio um framtíðarsýn ungmenna á norðurslóðum. Á Íslandi var rannsóknin gerð í Norðurþingi, á Þórshöfn og í Austur-Húnavatnssýslu en á þessum svæðum er lágt menntunarstig. Minnihluti ungmenna í könnuninni reiknar með að búa á uppvaxtarsvæðum en aukin menntun er samkvæmt rannsókninni svarið við þörfum þeirra, ekki stóriðja eins og nú er verið að byggja upp við Bakka á Húsavík.
„Ekki koma þessar upplýsingar mér á óvart, ég er sjálfur með tvo unglinga á heimilinu sem ætla sér annað en stóriðjustörf að þeirra sögn!“ segir Friðrik Sigurðsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings.
Hann segir að ef horft sé sérstaklega til Húsavíkur sé sami vandi og í dreifbýli í öðrum vestrænu löndum, svæðin glími við fólksfækkun og \"mittið\" sé farið úr eðlilegri íbúakúrfu. „Unga fólkið fer og kemur ekki aftur. Sem betur fer varð ekki úr því að hér risi 800 starfsmanna álver sem hefði \"átt\" samfélagið. Því er ég sáttari við það að hér rísi 127 manna vinnustaður PCC þar sem nær helmingur starfa krefst e.h. konar sérfræðiþekkingar sem er jákvætt. Væntingar mínar eru þær að fleiri fyrirtæki muni hefja rekstur á Bakka og vonandi verða flest þeirra ekki stóriðjur í þeim skilningi heldur hátæknistörf sem þykja eftirsóknarverð,“ segir forseti sveitarstjórnar Norðurþings.
Að sögn Önnu Ragnarsdóttur rannsakanda bendir rannsóknarniðurstaðan til mikils ósamræmis milli áherslu stjórnvalda í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni og þankagangs ungs fólks. Hentugra væri fyrir íslensk stjórnvöld að leggja áherslu á fjölbreytileika í atvinnuuppbyggingu í stað stórtækra lausna, sem kunna í tilviki PCC uppbyggingarinnar á Bakka að kalla á stórfelldan innflutning starfsmanna.
Eins og forseti sveitarstjórnar bendir á var þó á tímabili stefnt að mun stórtækari atvinnulausn, 800 manna álveri.