Þakið fauk af í heilu lagi

Algert gerningaveður er þessa stundina í Vestmannaeyjum, en liðsmenn Björgunarfélags Vestmannaeyja voru kallaður út fyrir skömmu vegna þaks sem var að fjúka í heilu lagi af húsi við Smáragötu. 
 
Vindhraðinn í Eyjum er nú 37 metrar á sekúndu samkvæmt vef Veðurstofunnar, en eitt hús hefur þegar verið rýmt í bænum vegna veðurofsans. Björgunarfélagið hafði engan tíma til að svara fyrirspurn fréttastofu. 
 

Adolf Þórsson, formaður Björgunarfélagsins, sagðist ekki hafa nákvæmar upplýsingar um hvað væri að gerast þarna - menn væru að reyna berja sig í gegnum vindinn. „Það er brjálað veður,“ segir Adolf, segir hann við fréttavef RÚV.

Þar segir að þak af íbúðarhúsi við Smáragötu hafi fokið af og lenti í heilu lagi á lóð rétt hjá. Húsið er stórskemmt og ekki talið öruggt fyrir björgunarmenn að fara nálægt því. Íbúarnir hafa verið fluttir í skjól og verið er að aðvara eigendur nærliggjandi húsa. Tilkynningar hafa borist um fleiri laus þök og fokverkefni.