Gagngerar endurbætur hafa verið gerðar á Gamla bíói við Ingólfsstræti í Reykjavík sem er nú orðið að margnota menningar- og veitingahúsi sem heldur í gamlar hefðir um leið og það leitar nýrra leiða í þjónustu.
Þetta kom fram í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöld en þar ræddi sjónvarpskonan Sirrý við Guðvarð Gíslason veitingamann sem hefur í engu sparað lagfæringar á þessu gamla og virðulega húsi.
Það á ekki síst við um Petersen svítuna Í Gamla bíói, en í henni eru tvö 20 manna rými, sem henta vel fyrir minni veislur og viðburði, en einnig er hægt að leigja alla svítuna fyrir stærri viðburði en þá rúmar hún allt að 150 manns.
Frá Petersen svítunni er hægt að ganga út í þakgarð með fallegu útsýni yfir miðborgina, en eins og myndin ber með sér er ekki amalegt að virða borgina fyrir sér af toppi þessa eins virðulegasta húss sem Reykjavík státar af.