„Þær skammir sem ég tek mest mark á í málinu öllu eru þær sem ég fékk frá móður minni fyrir átta mánuðum síðan,“ segir Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, nú þegar álit siðanefndar Alþingis liggur fyrir. En þar voru nokkur ummæli hans og Gunnars Braga Sveinssonar álitin brotleg við siðareglur. „Siðanefndarferlið hefur allt verið mjög klúðurslegt og þá er ég ekki að draga úr þeim ummælum mínum sem voru of glannaleg. En verklag bæði forsætisnefndar og siðanefndar hefur verið þannig að það hefur ekki aukið virðingu þingsins.“
Þetta er aðeins brot úr ítarlegri umfjöllun Fréttablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.
Bergþór segir að hann hafi haft það á tilfinningunni að málareksturinn hafi verið settur af stað til þess að ná fram hefndum gagnvart formanninum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fyrir gamlar og óuppgerðar skuldir. Engin ummæli hans hafi hins vegar þótt brjóta siðareglur.
„Álitið eins og það er orðað kom mér mjög á óvart,“ segir Bergþór. „Þarna eru bæði rangfærslur og rangar niðurstöður dregnar af ummælum. Sérstaklega þegar kemur að ummælum mínum um Albertínu Elíasdóttur og Írisi Róbertsdóttur. Þetta mál er svo fjölþætt. Maður verður að geta brugðist við ákveðnum þáttum þess á sama tíma og maður er miður sín yfir öðrum. Hvað varðar gildissvið reglnanna þá virðist sem staðan sé sú að þingmenn geti hvergi talað í einrúmi nema innandyra heima hjá sér.“
Hvað varðar framtíðina þá telur Bergþór að málinu sé nú lokið. Reiknar hann ekki með því að andstæðingar í pólitík muni nota álitið gegn þeim Gunnari. „Ég reikna með því að Klaustursmálið sé nú leitt í jörð eftir að bæði persónuverndarþættinum og þinglegri meðferð er lokið. Við sáum hversu lítið Þórhildur Sunna Ævarsdóttir gerði með álit forsætisnefndar í sínu máli og ég tek undir margt í þeirri gagnrýni sem hún setti fram,“ segir Bergþór.
Þetta er aðeins brot úr ítarlegri umfjöllun Fréttablaðsins. Smelltu hér til að lesa meira.