Vegir á Suðurlandi eru víðast hvar auðir og á Vesturlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en hálkublettir á fjallvegum en snjóþekja á Fróðárheiði. Það er snjóþekja eða hálkublettir á Vestfjörðum. Þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði og ófært á Þröskuldum en mokstur stendur yfir. Ófært er norður í Árneshrepp.
Á Norðurlandi eru víða hálkublettir, snjóþekja á vegum og betra að fara varlega. Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir. Þæfingur og skafrenningur er á Þverárfjalli og á utanverðum Tröllaskaga. Austan Eyjafjarðar er víða nokkur snjóþekja eða þæfingur, og él eða skafrenningur. Ófært er á Hófaskarði og Hálsum.
Þæfingur eða snjóþekja eru á Austurlandi. Ófært er á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Greiðfært er með Suðausturströndinni.
Veðurfræðinga greindi fyrir páskana á um hvort kalla mætti norðanáttina og kuldann \"páskahret\" eða norðanskot\" en ekki er talið samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð og Veðurstofu að mjög miklar raskaair verði á ferðaháttum landsmanna þótt mun kaldara sér nú yfir landinu en var um tíma.