Þæfingsfærð mjög víða á landinu

Ekki verður byrjað að ryðja húsagötur á höfuðborgarsvæðinu fyrrr en líða tekur á morguninn, en alls hafa níu snjóruðningstæki og nokkrir saltbílar frá Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar verið að störfum frá því snemma í nótt - og eru verkefnin næg.

Búist er við næsta hvelli í kvöld, en sá síðasti hreytti úr sér talsverðu snjómagni eins og almenningur varð var við í glannabítið í morgun. Lægðagangurinn heldur svo áfram fram að helgi, að því er Veðurstofan gerir ráð fyrir..  

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er hálka og skafrenningur á Sandskeiði og í Þrengslum en snjóþekja og skafrenningur á Hellisheiði. Mosfellsheiði er ófær og þæfingur á Lyngdalsheiði en mokstur er hafinn. Snjóþekja og éljagangur er annars á flestum vegum á Suður- og Suðvesturlandi og sumstaðar einhver skafrenningur.

Hálka og snjóþekja er á vegum um allt sunnan og vestanvert landið og víða eljagangur.  Á Norðaustur- og Austurlandi er talsvert mikið autt. Hálkublettir eða hálka er með suðausturströndinni.