Um 20 þúsund börn á Íslandi búa við alkóhólisma, annað hvort hjá foreldrum eða forráðamanna í virkri neyslu eða á heimili þar sem foreldrarnir hafa farið í meðferð vegna áfengisvanda eða annarrar fíknar. Ása Margrét Sigurjónsdóttir, sálfræðingur hjá SÁÁ segir að meira en 1000 börn frá 8 til 18 ára hafi leitað til sálfræðiþjónustunar frá árinu 2008.
Ása Margrét mætti í Þjóðbraut síðastliðinn fimmtudag til Lindu Blöndal. Hún telur að árangurinn sé góður en aðallega taki hún eftir hve börnum létti mikið þegar þau fá hjálp og fræðslu. \"Þau eru búin að stíga þetta skref og sjá að þau eru ekki ein um að búa við Alkóhólisma\", segir Ása.
Viðtalið í heild má sjá hér: