Jón Viðar Jónsson gefur íslenskum bíómyndum misgóða dóma. Í færsla á Facebook síðu sinni segir hann að um þessar myndir séu í boði tvær nýjar íslenskar bíómyndir, Síðasta veiðiferðin og Amma Hófí. Gamanmyndir báðar tvær.
Hann segir að mikill gæðamunur sé á þessum tveimur myndum og ekki spurning hvor myndanna fær hans meðmæli.
„Síðasta veiðiferðin er bráðskemmtileg og neyðarleg lýsing á ákveðnum karlakúltúr, sem hér þrífst, fyllerísferðum undir yfirskini veiðimennsku. Leikararnir sex þekkja nákvæmlega þær týpur sem þeir eru að túlka og frammistaða þeirra eftir því."
Var ekki jafn hrifinn af Ömmu Hófí.
„En Amma Hófí - æi það er nú ekki margt gott um hana að segja, þó þarna sé ágætis leikurum teflt fram ná fæst þeirra að fóta sig í arfalélegu handriti, kauðslega skrifuðum samtölum og samanklambraðri og víða lítt trúverðugri atburðarás. Gísli Örn Garðarsson er eini leikarinn sem náði þéttum tökum á sínu hlutverki og yndi var að horfa á. Svo var herfilega uppkeyrðri "tónlist" smurt ofan á allt gúmmelaðið, væntanlega til að ná í eitthvað af þeirri spennu sem vantaði þarna að öðru leyti. Maður var að vona að íslensk kvikmyndagerð væri á leið upp úr svona hallærisgangi og dilettantisma - en lengi skal manninn reyna eins og þar stendur Sem sagt: ef þið þurfið að velja á milli þessara tveggja mynda þá er ekki spurning hvort þeirra fær mín meðmæli."