Eiríkur Jónsson, fyrrverandi formaður Kennarasambandsins, sem og nokkrir aðrir hafa sagt, í útvarpi Hringbrautar, að þegar grunnskólinn var færður frá ríki til sveitarfélaga, hafi mikið vantað upp á að nægir peningar hafi fylgt þeirri aðgerð. Jafnvel hafi vantað um fimm milljarða til að rétt væri gefið.
Eiríkur sagði að þegar þetta var gert hafi aðeins einn sveitastjórnarmaður hlustað á kennarana, hvað þetta varðar. Sá var Gísli Gíslason, þáverandi bæjarstjóri á Akranesi.
Gísli sem í dag er hafnarstjóri Faxaflóahafna mætir í hádegisútvarp Þjóðbrautar í hádeginu á morgun og rifjar þetta upp og efaust verður rætt við hann um annað, svo sem komu skemmtiferðaskipa.
Sigurjón M. Egilsson hefur umsjón með útvarpsþáttum Þjóðbrautar sem eru í útvarpi Hringbrautar, fm 89,1 og á netinu, hringbraut.is.
Hádegisútvarpið er á dagskrá mánudaga til fimmtudaga og hefst klukkan 12:30.