Tvö ár eru síðan ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var mynduð en gefur nýliðið ár einhver fyrirheit um hvað koma skal á nýju ári?
Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður á Fréttablaðinu og Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands ræða málin við Lindu Blöndal í 21 í kvöld.
Fátt ef eitthvað getur fellt ríkisstjórnina nema ef vera skyldi eitthvert hneykslismál sem enginn sér fyrir. Samherjamálið er enn óskrifað blað hvað það varðar segja þær en það - sem og önnur mál séu ekki fyrirsjáanleg um að muni mögulega granda stjórn Katrínar.
“Þetta einkennist af karlrembu”, segir Stefanía um gagnrýni á Katrínu og um að hún sé handbendi Bjarna Benediktssonar. Stefanía segir hana staðið í lappirnar þegar Sigríður Andersen fór frá, það hafi verið krafa Katrínar. Um uppbyggingu bandaríska varnarliðsins á Suðurnesjum hafi hún aftur á móti þurft að lúta fyrir vilja samstarfsflokkanna.
“Ólgan er fyrst og fremst innan stofnana og varðandi hátt setta embættismenn”, segir Aðalheiður um hvar hafi verið órói hjá ríkisvaldinu á liðnu ári og minnist deilna innan Ríkislögreglustjóraembættisins og heilbrigðisstofnana.