Það þarf betri barnabætur

„Þessi greining er áhyggjuefni og rímar við varnaðaorð okkar undanfarið. Mikilvægasta verkefnið er að bæta hag leigjenda og einstæðra foreldra,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og oddamaður minnihlutans á Alþingi í svari við fyrirspurn Hringbrautar.

Fyrr í dag var kynnt skýrsla UNICEF með sláandi niðurstöðum um skort hjá íslenskum börnum.

Þar kemur fram að  rúmlega 6.100 börn á aldrinum 1-15 ára líði efnislegan skort hér á landi. Þar af líði tæplega 1.600 börn verulegan skort og hafi þeim fjölgað verulega.

„Eins og við þreytumst ekki á að segja: Það þarf betri barnabætur, húsaleigubætur og fæðingarorlof! Stuðningur hins opinbera við barnafjölskyldur hér á landi stenst engan veginn samjöfnuð við það sem gerist í grannlöndunum og það er einn stærsti áhrifaþátturinn í brottflutningi barnafólks frá landinu. Sérstakt gleðiefni er þó að sjá að börn foreldra af erlendum uppruna eru ólíklegri til að líða skort en önnur,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í samtali við Hringbraut.