Viðskiptabankarnir verða ekki seldir á einu ári og líklega ekki á þessu kjörtímabili. Það gæti allt eins tekið þrjú kjörtímabil að klára söluferli þeirra - og viturlegast er að það gerist innan Kauphallarinnar.
Þetta er mat fjölmiðlamannanna Bjarna Ólafssonar og Þorbjörrns Þórðarsonar sem eiga það sameiginlegt að hafa sérhæft sig í viðskiptafréttum á síðustu árum, allt frá því fyrir hrun þegar þeir störfuðu báðir á ViðskiptaMogganum, en Bjarni ritstýrir nú Viðskiptablaðinu og Þorbjörn starfar sem fréttamaður á Stöð og hefur að auki vakið athygli fyrir málefnalega og írgundaða leiðara sína í Fréttablaðinu.
Þeirra hlutverk í Ritstjóraþætti vikunnar, sem frumsýndur var á þriðjudagskvöld og nú má sjá hér á vef stöðvarinnar, er að rýna í stöðu viðskiptalífsins á Íslandi og þar taka þeir bæði fyrir nýjustu vendingar í viðskiptum Icelandair og fyrirsjánlega sölu ríkisins á hlutum sínum í viðskiptabönkunum þremur, en þess utan fjalla þar almennt um þær blikur og teikn sem eru á lofti í viðskiptalífi landsmanna sem margir eru að máta við aðdraganda hrunsins fyrir röskum átta árum, hvort sem það áa nú rétt á sér eða ekki. Bjarni og Þorbjörn eru þar sammála að viðskiptalífið sé almennt varara um sig en þekktist fyrir hrun og haldi aftur af sér, jafnt í fjárfestingum og útlánum - og meira að segja fjlömiðlar, svo þeir gerist dómarar í eigin sök, hagi sér með ábyrgari hætti en á þensluárunum; þá hefði til dæmis aldrei verið skrifað með sama hætti um vanda Iceelandair og nú er gert.
Svo er nokkrum skammti af þættinum varið í umfjöllun um líðan nýrrar ríkisstjórnar og augljósan núning og pirring millum íhaldssamra hægrimanna og þeirra hinna frjálslyndari í stjórnarliðinu, en kannski verður það einmitt svo að stöku þingmenn í þeim hópi fái að skauta eitthvað með framtánni eftir því sem líður á kjörtímabilið, svona aðallega til að sýna lit og lögun.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.