Mynd dagsins: „Þetta var mögulega skrítnasta móment vikunnar“

Margt skrítið hefur á dagana drifið í vikunni sem leið en tískufatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, best þekktur sem Guðmundur í Jör, fann mögulega það skrítnasta.

„Þetta var mögulega skrítnasta móment vikunnar,“ skrifaði Guðmundur í Twitter-færslu með myndinni sem sést hér að neðan. Það sem kann við fyrstu sýn að líta út eins og mannrán um hábjartan dag ku vera flutningur nýrrar gínu á Sögusafnið – eða er það ekki örugglega?