Albanskri fjölskyldu sem flutt var úr landi í nótt hafði verið tilkynnt að hún yrði flutt úr landi. Fjölskyldufaðirinn hafði verið sviptur atvinnuleyfi og gert að greiða hámarkskostnað fyrir læknishjálp fyrir langveikan son, að sögn fjölskylduvinar.
Þetta kemur fram á Stundinni en þar er brugðist við ummælum forstjóra Útlendingastofninar sem sagði í hádegisfréttum Rúv að fjölskyldan, sem flutt var með lögreglufylgd af heimili sínu í nótt og send úr landi, hefði sjálf beðið um að vera flutt burt.
Stundin hefur eftir Hermanni Ragnarsyni, vinnuveitanda og félaga annars albanska fjölskylduföðurins, að yfirlýsing stofnunarinnar gefi einfaldaða og villandi mynd af raunveruleikanum.