„það nagar fólk að innan” – 21 á mánudag: linda blöndal ræðir við forstöðumann bráðaþjónustu landspítalans

Yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítalanum, Már Kristjánsson segist óttast stórslys í viðtali Læknablaðsins vegna stöðunnar sem uppi er á bráðamóttökunni í Fossvogi.

Jón Magnús Kristjánsson, forstöðumaður bráðaþjónustu Landspítalans var í þættinum 21 hjá Lindu Blöndal.

 „Staðan á bráðamóttökunni er mjög erfið þessa dagana. Og það hefur verði notað orð eins og neyðarástand og ég held að það megi til sanns vegar færa”.

Vandinn sé ekki að fleira fólk sé að leita til bráðamóttökunnar heldur vegna þess að fólk sem ætti að fá rými annars staðar í heilbrigðiskerfinu kemst hvergi að. „Fólk á erfiðara með að komast frá okkur annars staðar í kerfinu”.

Tæplega níu rými eru eftir af tæplega fimmtíu á bráðamóttökunni, segir Magnús Jón og talar þar um hve mörg rými eru fyrir þá sem ættu annars að vera komnir á langlegudeildir.

Orð Más Kristjánssonar sem nefndi stórslysahættu í Læknablaðinu tekur hann undir. Til dæmis, verði rútuslys sé bráðamóttakan illa sett og varla í stakk búin til að taka á slíku.

Í kvöldfréttum RÚV á sunnudag var sagt frá því Krabbameinsveikur maður með blóðtappa var í nóvember sendur heim af bráðamóttöku Landspítalans, vegna álags á deildinni. Hann lést stuttu eftir það. Líkur eru að því að maðurinn hefði ekki látist eftir heimferðina ef hann hefði fengið lengri aðhlynningu á spítalanum.

„þetta er hræðileg saga. Ef að aðstandandi eða starfsmaður lítur þannig á þeir hafa sent einstakling heim of snemma … og ég finn mjög til með aðstandendum og starfsmönnunum”, segir Jón Magnús en að hann geti ekki tjáð sig um einstök tilvik.

Um hvernig starfsmönnum bráðamóttökunnar líður segir Jón Magnús:

“Þetta er eins og allir fagmenn, ef þeir vita að þeir geta unnið starf sitt en hafa ekki aðstöðu til þess þá nagar það fólk að innan”.