„Það lítur út fyrir að við sitjum bara uppi með gömlu íslensku kleinurnar. Og kleinuhringi í bakaríum sem bragðast bara eins og kleinur með kremi.“
Þetta segir Egill Helgason, dagskrárgerðarmaður, í pistli sínum á Eyjunni í dag.
Egill segir að innrás erlendra kleinuhringja hafi misheppnast eftir að fréttir að kleinuhringjastaðir Krispy Kreme á Íslandi tilkynntu að þeir myndu loka. Dunkin´Donuts hefði lokað í janúar á þessu ári, en stefnt var að opna 16 staði hér á landi.
„Kleinuhringjainnrásin á Íslandi hefur gjörsamlega misheppnast. Í dag var tilkynnt að síðustu Krispy Kreme kleinuhringjastaðirnir á Íslandi væru að loka. Fyrir hálfum áratug eða svo hófst innrásin með opnun Dunkin´Donuts á Laugavegi. Þá stóðu landsmenn í löngum biðröðum eftir kleinuhringjum. Gengu á brott með fulla kassa af hinu fituríka sætmeti. Svo kom Krispy Kreme. Sérfróð kleinuhringjaæta tjáði mér að þeir væru bragðbetri en Dunkin´Donuts. En allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir harða markaðssetningu mistókst þetta hjá þeim – hún fólst meðal annars í því að ekið var hlassi af kleinuhringjum á Elliheimilið Grund. Kannski var markhópurinn ekki alveg þar.“
Egill segir enn fremur að Íslendingar eigi nú eftir þessa misheppnuðu innrás erlendra kleinuhringja samt sem áður gömlu kleinurnar eftir, þó sumar þeirra séu oft nokkuð þurrar.
„Íslendingar eru nýjungagjarnir en þeir hafa ekki mikið úthald. Þeir tóku kleinuhringjunum fagnandi. Um tíma voru sölustaðirnir fjölmargir – Dunkin´Donuts ætlaði að opna 16 staði. En svo hætti fólkið að koma og allt fór út um þúfur. Við höfum sem sagt okkar gömlu kleinur – misjafnar að gæðum, oft nokkuð þurrar. Á það hefur reyndar verið bent að á ensku gætu þær nefnst doughknot eða einfaldlega doknot, svona ef við viljum fara að markaðssetja þær fyrir útlendinga.“