„Nú eru þetta allt öðruvísi aðstæður. Nú eru liðin nokkur ár og allir eru orðnir sterkir og eins og við segjum, lífið heldur áfram“, segir Þórunn Erna Clausen leikkona og tónlistarmaður í Mannamáli í gærkvöld þegar hún rifjar upp Eurovisonþátttökuna fyrir sjö árum í skugga fráfalls eiginmanns hennar Sigurjón Brinks eða Sjonna.
„Við erum að tala mikið um sorgina og erfiðleikana sem dundu yfir“, segir hún um hvað einkenndi þátttökuna í keppninni þá um árið en sjálf hafði hún fengið heilablóðfall, ekki löngu áður.
Nú er Þórunn Erna fyrst að fara út í Eurovison keppnina sem lagahöfundur en hún er höfundur vinningslags og texta í Söngvakeppni sjónvarpsins sem nefnist „Heim“ eða „Our Choice“ á ensku. Þórunn fer til Lissabon með lagið en áður fór hún eins og kunnugt er út í Eurovisonkeppnina árið Sjonni átti upphaflega að flytja.
Þórunni og flytjendum lagsins verið boðið að flytja lagið í lokakeppninni meðal Eystrasaltsríkjanna. „Við erum með mjög sterk skilaboð í þessu lagi sem að tengjast svolítið inn í það sem maður er búinn að læra í lífinu og það er einmitt að við höfum val um hvernig við komum fram við hvort annað“, segir Þórunn. „Við ráðum því alveg sjálf ef við erum fávitar“, segir hún og hlær og minnir jafnframt á hið óumflýjanlega í lífinu: „Það kemur eitthvað fyrir okkur öll“.
Mannamál er endursýnt í dag en einnig sjáanleegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.