Sigurborg:„það hefði verið betra að hafa þetta á hreinu“ - engir rammasamningar í 5 ár

Á aðeins fimm árum hefur Reykjavíkurborg keypt þjónustu án rammasamninga og fárra útboða fyrir sjö milljarða króna. Þetta kom fram í þættinum 21 hér á Hringbraut. Borgin hefði getað sparað sér 1,5 milljarð hefðu rammasamningar verið virkir. 

„Það hefði verið betra að hafa þetta á hreinu“ sagði Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, í þættinum.

Samkvæmt skýrslu sem Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar gaf út í mars, vegna verklegra framkvæmda og innkaupamála Reykjavíkurborgar, hefur í fimm ár ekki verið nýttir rammasamningar vegna kaupa borgarinnar á þjónustu frá verkfræðistofum og arkitektastofum. Í skýrslunni kemur einnig fram að Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar gerði skýrslu um innkaup borgarinnar árið 2010. Fimm árum síðar var gerð eftirfylgninsskýrsla og kom þá í ljós að engar ábendingar í skýrslunni frá 2010 höfðu fengið fullnægjandi úrbætur. Enn í dag er ekki búið að útfæra öll atriði sem Innri endurskoðandi benti á að þyrfti að laga.

Þegar skýrslan er skoðuð ítarlega kemur í ljós að sama skrifstofan og bar ábyrgð á framúrkeyrslu á bragganunm bar einnig ábyrgð á framúrkeyrslunni á Mathöllinni á Hlemmi. Skrifstofustjóri þar var Hrólfur Jónsson, en hann hefur látið af störfum hjá borginni. Kemur fram í skýrslunni að í þremur af þeim fjórum framkvæmdum sem voru sérstaklega skoðaðar vantaði að gera kostnaðaráætlun I og er það brot á reglum borgarinnar. Segir Innri endurskoðandi að það gefi til kynna að ekki sé nægur tími gefinn til undurbúnings framkvæmda og eykur það áhættuna á því að hönnun sé ófullnægjandi og ekki nægilega vel rýnd.