Kristinn Sigmundsson söngvari var gestur í sunnudagsþætti Þjóðbrautar. Kristinn er virkur í umræðunni, einkum á Facebook. Þar sem hann á oft mjög fín skrif.
Kristinn talaði ögn um sönginn og sagði meðal annars að hann vinni oft með Íslendingum hér og þar um heiminn, oft í frægustu tónlistarhúsum veraldar.
Hann nefndi nokkur dæmi um fínan framgang íslensks tónlistarfólks, bæði á sviði og eins í hljómsveitum óperuhúsanna.
Hann hefur áhyggjur af mörgu sem er að gerast í samfélaginu og telur að við förum ekki nógu vel með sameiginlegan arð okkar.
Viðtalið við Kristinn verður aðgengilegt á vef Hringbrautar; hringbraut.is á morgun.