„Það er þetta fólk sem tryggir Bjarna stað á Alþingi Íslendinga“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og fyrrverandi fjölmiðlakona, hvetur fólk til að mótmæla Íslandsbankaútboðinu sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga. Það gerir hún í færslu á Facebook, þar sem hún kallar útboðið rán á almannafé.

„Sumir hafa gaman af því að þrátta um fjölda mótmælenda á viðburðum eins og þeim á Austurvelli í gær. Úrtölur eru notaðar til að draga kjarkinn úr þeim sem vilja gera kröfur um réttlátara samfélag. Það er rétt að árétta að það er sjálfsagður réttur okkar og skylda að bregðast við óréttlæti og vanhæfi stjórnvalda hvenær sem er og það er sjálfsagt að sitja ekki undir því ráni á almannafé sem svo skýrt er upp teiknað í Íslandsbankasöluferlinu.“

Steinunn lætur Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, heyra það í færslunni. Hún vill meina að hann hafi einfaldlega verið að kaupa sér traust ákveðinna aðila með söluferlinu. Steinunn heldur því fram að umræddir aðilar tryggi Bjarna sæti sitt á Alþingi.

„Þar er ekki einungis óréttlæti á ferðinni hvað varðar útvalda kaupendur heldur var óábyrg og vanhæf stjórnsýsla í söluferlinu öllu. Það var bruðlað með peningana okkar! Af engri ástæðu annari en þeirri að Bjarni Benediktsson var að kaupa sér trúnað og tryggð og kannski stuðning handvalinna aðila í íslensku atvinnulífi. Það er þetta fólk sem tryggir Bjarna stað á Alþingi Íslendinga. Bjarni er enginn afburðarmaður en hann skilur mikilvægi þess að koma sér í mjúkinn hjá fjársterkum aðilum því fólki á Íslandi sem er margfallt ríkara en hann sjálfur. Bjarni á engar hugsjónir til öðrum til handa því miður. Ekki raunverulega. Hann hefur bara áhuga á völdum og hann kann að kaupa sér völd.“

Hún segir að sú staða sé nú uppi að fólkið í landinu geti ekki treyst ríkisstjórninni, fjármálaráðherra eða bankasýslu ríkissins til að verja hagsmuni almúgans. Hún segir að þess vegna skuli fólk mæta á mótmæli.

„Við hin sem viljum búa í samfélagi MEÐ öðru fólki og erum sátt við það að rekstur samfélaga sé samvinnuverkefni en ekki hagnaðardrifið viðskiptamódel getum, nú seinast í ljósi Íslandbankasölunnar bara alls ekki treyst ríkisstjórninni, fjármálaráðherra eða bankasýslu ríkissins til að gera það sem er okkur fyrir bestu. Við verðum saman að verja okkar sameiginlegu hagsmuni.

Þeir 500-1500 eftir því hver vill telja, sem mættu á Austurvöll í gær eiga þakkir skilið og við sem komumst ekki komum næsta laugardag. Það er hvorki tilgangslaust eða asnalegt að berjast fyrir því að með almannafé sé vel farið. Það er gott að sjá samstöðu fólks og finna fyrir henni sjálfur. Það er sjálfsagt að mótmæla og við höfum sem samfélag fengið ýmsu framgengt einmitt á þann hátt. Og getum gert það aftur!

Hættum að skammast okkar fyrir að vera beitt óréttlæti.“

Steinunn endar síðan færslu sína á orðunum: „Að með almannafé sé gamblað í boði stjórnvalda er ofbeldisglæpur sem einhver þarf að svara fyrir.“