„það er stór­slys í að­sigi“

Már Kristjáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­lækninga, er stór­yrtur í við­tali við Lækna­blaðið og segir að stór­slys sé í að­sigi á bráða­mót­töku Land­spítalans. Hann segir að fjöldi inn­liggjandi sjúk­linga á bráða­mót­tökunni hafi þre­faldast á tveimur árum.

„Ég hef miklar á­hyggjur af vetrinum. Ég tel stór­slys í að­sigi. Það er fyrir­sjáan­legt að þetta getur ekki farið vel. Það er full á­stæða til að vara við því,“ segir Már. Hann segir vont að vera settur í ömögu­lega stöðu. „Mér finnst staðan á bráða­mót­töku Land­spítala vera ó­mögu­leg.“

Hann segir að deildin sé þegar sprungin. Hún gæti ekki með góðu móti tekið við sjúk­lingum kæmi upp hóp­slys.

„Undir þessum kring­um­stæðum skapast ó­fag­legar að­stæður, heil­brigðis­starfs­fólki verður á og sjúk­lingar gjalda fyrir það,“ segir Már og segir að að­stæður sjúk­linga sem stundum þurfa að vistast á göngum ekki boð­legar.

„Þróunin er ógn­væn­leg og að­gerðar­leysið hálf­gerð normalí­sering á ó­eðli­legu á­standi. Þegar maður vinnur á bráða­mót­tökunni áttar maður sig á því hvað á­standið er galið.“

Hann segir van­mátt starfs­manna miklan: „Ég kvíði fyrir vetrinum,“ segir Már.

„Geð­svið, lyf­lækninga­svið, skurð­s­við og flæði­svið eru öll sprungin,“ les Már úr starf­semis­upp­lýsingum spítalans fyrir októ­ber.

„Það er ekki heil­brigðis­ráð­herra eða stjórn spítalans sem ber á­byrgð á starf­seminni. Á­byrgðin á vondri vinnu­að­stöðu er sett á heil­brigðis­starfs­fólk og það er læknirinn sem síðan ber endan­lega á­byrgð á sjúk­lingnum.“