Það verður talað um pólitískt lík í lestinni í Ritstjóraþætti kvöldsins sem er á að giska tæpitungulaus í þokkabót, enda um enga venjulega viku í íslenskri pólitík að ræða um.
Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttatímans eru sessunautar Sigmundar Ernis í kraftmiklum þætti kvöldsins sem fellir palladóma yfir föllnum forsætisráðherra, nýrri stjórn og pólitískri líðan Bjarna Benediktssonar eftir aflandseyjuumræðu síðustu dægra.
Stöllurnar sem sitja fyrir svörum í kvöld eru sammála um að það sé eðlismunur á máli Bjarna og Sigmundar, en engu að síður geti málið reynst erfitt fyrir Bjarna um ófyrirséða framtíð - og hitt sé ómögulegt að segja hvort Sigmundur Davíð hafi endanlega kvatt íslensk stjórnmál.
Þá eru fyrstu spor Sigurðar Inga á stóli forsætisráðhera metin, en ritstjórarnir eru sammála um að hann flytji með sér annan andblæ í Stjórnarráðið en fyrirrennari hans og sé líklegri sáttasemjari en hann.
Ritstjórarnir fella dóm sinn klukkan 21:00 í kvöld.