Það er meira eggjahljóð í vinstrimönnum

Það er meira eggjahljóð í vinstrimönnum en þeim hægri, að mati Guðmundar Hálfdánarsonar, sagnfræðings sem telur félagshyggjuöflin vera komin lengra á veg með að mynda nýja stjórn en hægrimenn þingsins.

 

Þetta kemur fram í klukkustundarlöngum þætti Hringbrautar í kvöld um eftirmál kosninganna um helgina, en þar rýna einnig í stöðuna Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og starfsbróðir hennar Eiríkur Bergmann Einarsson sem segir að það hafi orðið íhaldsbylgja um helgina, röddum frjálslyndis hafi fækkað á Alþingi á meðan gamaldags þjóðleg gildi hafi átt fremur upp á pallborð kjósenda.

Þingkonurnar Helga Vala Helgadóttir og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta einnig í þáttinn og tala fyrir frekari samvinnu á Alþingi, en úrslit kosninganna megi túlka sem ákall almennings um að þingmenn eigi að einbeita sér að vinnunni sinni og koma því í verk sem samstaða sé um - og þar sé af nógu að taka.

Kosningaþáttur Hringbrautar er í umsjá Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis og hefst klukkan 20:00 í kvöld.